Menu
Súkkulaði bollakökur með sykurpúðum

Súkkulaði bollakökur með sykurpúðum

Innihald

1 skammtar

Bollakökur:

hveiti
smjör við stofuhita
sykur
egg
vanilludropar
mjólk
dökkt kakó
matarsódi
salt

Súkkulaði rjómaostakrem:

smjör, við stofuhita
rjómaostur frá Gott í matinn, við stofuhita
flórsykur
vanilludropar (1-2 tsk.)
bráðið súkkulaði
dökkt kakó

Skraut:

suðusúkkulaði
smjör
Litlir sykurpúðar
Pekanhnetur

Bollakökur

  • Stilltu ofninn á 180°C hita og raðaðu um 20 stykkjum af bollakökuformum á ofnplötu
  • Blandaðu saman hveiti, matarsóda og salti í skál og settu til hliðar.
  • Hrærðu smjörið þangað til það er orðið mjúkt bættu svo sykrinum saman við og hrærðu á meðalhraða saman. Bættu eggjunum saman við einu í einu og hrærðu vel saman.
  • Blandaðu vanilludropunum og mjólkinni saman í bolla.
  • Blandaðu hveitiblöndunni og mjólkurblöndunni saman við til skiptis smá og smá í einu og hrærðu vel á milli. Skafðu skálina vel að innan og hrærðu örlítið lengur til þess að blanda öllu vel saman.
  • Bættu kakóinu saman við og hrærðu vel saman á lágum hraða.
  • Settu deigið í bollakökuformi og reyndu að fylla þau ekki meira en 2/3. Bakið í um 20 mínútur.
  • Kældu kökurnar alveg áður en þú setur kremið á.

Súkkulaði rjómaostakrem

  • Hrærðu smjörið og rjómaostinn saman þangað til blandan verður mjúk.
  • Bættu flórsykrinum saman við jafnt og þétt og hrærðu vel á milli. Bættu við vanilludropunum.
  • Blandaðu saman við brædda súkkulaðinu og kakóinu og hrærðu vel. Skafðu hliðar skálarinnar vel og hrærðu í um 2 mínútur.
  • Sprautaðu kreminu á kældar kökurnar, skreyttu með litlum sykurpúðum, bræddu saman suðusúkkulaði og smjöri saman og heltu yfir sykurpúðana, skreyttu með skornum pekanhnetum.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir