Menu
Sykurlausir piparmyntuhnappar

Sykurlausir piparmyntuhnappar

Þessi uppskrift er einstaklega barnvæn og geymist í mánuð eða lengur. Súkkulaðigrísirnir geta brætt sykurlaust súkkulaði og dýft namminu í.

Innihald

1 skammtar
rjómaostur frá Gott í matinn við stofuhita
sukrin melis (flórsykur ef þið eruð ekki að forðast sykur)
piparmyntudropar
piparmyntu stevía (má sleppa)
matarlitur ef þess er óskað

Skref1

  • Setjið rjómaostinn í hrærivél helst en hægt að gera þetta í höndum og þeytið vel í smá stund.

Skref2

  • Bætið við piparmyntu dropum og stevíu og blandið vel.
  • Því næst fer matarlitur og svo er sukrin melis rólega bætt við.

Skref3

  • Gott er að hnoða aðeins í höndunum í lokin.

Skref4

  • Búið til litlar kúlur og setjið á ofnplötu með bökunarpappír á.
  • Notið svo gaffall til að þrýsta örlítið á kúlurnar.

Skref5

  • Látið þorna á eldhúsborðinu í 2-3 klukkutíma. Ekki setja neitt yfir nammið á meðan.
  • Geymið svo í ísskáp í lokuðu íláti.

Höfundur: Hafdís Priscilla Magnúsdóttir