Menu
Súkkulaðibita og pekanhnetu smákökur með karamellu

Súkkulaðibita og pekanhnetu smákökur með karamellu

  1. Hitið ofninn í 180 gráður. Hrærið smjöri, sykri og púðursykri vel saman. Bætið við eggjum og hrærið vel saman á milli. Bætið við vanilludropum og sírópi.
  2. Blandið saman hveiti, kanil, salti og matarsóda og bætið rólega saman við.
  3. Grófsaxið súkkulaðið og hneturnar niður og blandið saman með sleif, bætið saman við höfrum og hrærið vel saman með sleif.
  4. Setjið u.þ.b. 30 g í hverja köku, myndið litla bolta og setjið á plötu með smjörpappír. Bakið í 10-12 mínútur. passið að baka þær ekki of lengi, kökurnar eru mjög linar þegar þær eru teknar út úr ofninum. Þegar kökurnar eru teknar út úr ofninum er stráð maldon salti yfir þær, kælið í 15 mínútur. Á meðan kökurnar eru að kólna er gott að undirbúa karamelluna sem er svo helt léttilega yfir hverja köku.

Innihald

-1 skammtar

Kökur innihald

smjör við stofuhita
dökkur púðursykur
sykur
egg
vanilludropar
síróp
hveiti
kanill
matarsódi
maldon salt
dökkt súkkulaði, gróf saxað
H-berg pekanhnetur
hafrar

Karamella

Nóa Sirius ljósar töggur
rjómi
síróp

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir