Menu
Mjúkar súkkulaðibitakökur með rjómaosti

Mjúkar súkkulaðibitakökur með rjómaosti

Innihald

30 skammtar
smjör við stofuhita
rjómaostur
dökkur púðursykur
sykur
stórt egg
vanilludropar
hveiti
matarsalt
sjávarsalt
dökkt súkkulaði

Aðferð

  • Hrærið smjör og rjómaost saman þar til blandan verður ljós og létt.
  • Bætið sykri saman við og hrærið vel saman.
  • Setjið egg og vanilludropa saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Gott er að skafa hliðar skálarinnar hér.
  • Blandið hveiti, matarsóda og salti saman í skál og setjið saman við deigið smátt og smátt í einu.
  • Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman, passið ykkur þó að hræra ekki of mikið.
  • Skerið niður súkkulaði í grófa bita og blandið saman við.
  • Setjið deigið í skál með plastfilmu yfir og kælið í rúma 1-2 klst.
  • Takið deigið út og leyfið því að jafna sig í rúmar 15 mínútur.
  • Setjið bökunarpappír á tvær bökunarplötur, myndið jafnstórar kúlur úr deiginu og raðið með jöfnu millibili á plöturnar.
  • Þrýstið örlítið niður á hverja köku með fingrunum.
  • Bakið í 10 mínútur við 170 gráðu hita.
  • Kælið kökurnar alveg áður en þið takið þær af bökunarplötunni og setjið í box svo þær haldist mjúkar.
  • Kökurnar eru einstaklega góðar heitar með ískaldri mjólk. 

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir