Menu
Flórentínur

Flórentínur

Innihald

1 skammtar

Flórentínur

heildar möndlur, án hýðis
smjör, ósaltað
sykur
hveiti
rjómi frá Gott í matinn
blandaður sykraður ávaxtabörkur, appelsínu og sítrónubörkur, fínsaxaður (valfrjálst)
sykruð rauð kirsuber, grófsöxuð (valfrjálst)
súkkulaði, hvítt eða dökkt eða hvort tveggja

Skref1

  • Hitið ofninn í 190°C.
  • Saxið möndlurnar þannig að bitarnir séu bæði litlir og stórir.
  • Bræðið smjörið og sykurinn saman í þykkbotna potti.
  • Stráið hveitinu yfir og hrærið.
  • Hrærið rjómann saman við og látið malla í nokkrar mínútur þar til sósan þykknar.
  • Takið pottinn af hitanum og blandið möndlum, berki og kirsuberjum saman við.

Skref2

  • Breiðið smjörpappír á bökunarplötur og setjið deigið á plöturnar með teskeið.
  • Hafið gott bil á milli, kökurnar renna út.
  • Bakið ofarlega í ofninum í 10–12 mínútur eða þar til kökurnar byrja að brúnast aðeins á köntunum.
  • Takið þær þá úr ofninum og látið þær kólna á plötunni þar til þær eru það stífar að hægt sé að taka þær af.

Skref3

  • Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði, hvorn lit fyrir sig ef bæði er notað ljóst og dökkt súkkulaði.
  • Penslið neðri hliðina á kökunum með bræddu súkkulaði og látið súkkulaðihliðina snúa upp á meðan súkkulaðið harðnar.
  • Ef þið viljið má renna gaffli í gegnum súkkulaðið til þess að búa til rendur í það.

Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir