Menu

Innihald

12 skammtar
rjómi (notað í miðju og topp)
vanilluskyr (hægt að prófa aðrar tegundir)
Mars-súkkulaðistykki (stór)
Snickers-súkkulaðistykki (stórt)
Nóa rjómakúlur
ljóst súkkulaði
síróp
rice krispies

Botn

  • Mars, súkkulaði og síróp brætt við vægan hita í potti, passið að hræra vel á meðan svo það verði ekki kekkjótt.
  • Rice krispies er bætt ofan í súkkulaðiblönduna og hún svo sett í form og inn í ísskáp.

Fylling

  • 3/4 af rjómanum er þeyttur og skyrinu svo blandað saman við þeytta rjómann og smurt ofan á botninn þegar hann hefur kólnað.

Toppur

  • Rjómakúlurnar eru settar í pott með restinni af rjómanum og látnar bráðna við vægan hita, passið að hræra vel á meðan.
  • Síðan er kakan skreytt með Snickers kurli og karamellu bræðingnum.
  • Best er að kæla kökuna í minnsta lagi klukkutíma áður en hún er borin fram. 

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir