Menu
Páskaleg kaka

Páskaleg kaka

Innihald

12 skammtar

Kaka:

smjör við stofuhita
sykur
hveiti
stór egg
lyftiduft
vanilludropar
gulur matarlitur

Toppur:

smjör við stofuhita
flórsykur
salt
mjólk
vanilludropar
súkkulaði (ljóst eða dökkt)
lítil súkkulaðiegg frá Cadbury
gulur matarlitur

Aðferð

  • Ofninn er settur á 160°C blástur
  • Smjör og sykur er sett í hrærivélina og þeytt þar til blandan er létt og ljós, þá er eggjunum, hveitinu, vanillu, lyftidufti og tsk. matarlit bætt út í og hrært vel,
  • Smyrjið kökuform vel með smjöri og setjið deigið í 2 form og inn í ofn í 35-40 mínútur eða þar til hægt gaffall kemur hreinn upp úr kökunni þegar stungið er ofan í hana.
  • Á meðan kakan er inni í ofni er fínt að byrja á að gera kremið
  • Í hrærivélina fer smjör, salt, vanilla, flórsykur, mjólk og matarlitur og hrært þar til kremið er orðið mjúkt og fínt.
  • Ein lúka af súkkulaði eggjunum er sett í blandara eða matvinnsluvél og mulið fínt.
  • Þegar botnarnir eru komnir út og þeir búnir að kólna aðeins er kremið sett á kökuna ásamt súkkulaðieggja mylsnunni á milli og kakan sett í kæli í 15-20 mínútur áður en súkkulaðibráðin er sett á ofan á.
  • Súkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði og aðeins látið kólna áður en það er sett á kökuna, það er gott að byrja á að setja súkkulaðið í miðjuna og dreifa því fram að köntunum með skeið, og láta það leka aðeins meðfram köntunum.
  • Kakan er svo skreytt með eggjum og afgangs smjörkremi. T.d. er hægt að gera toppana með stút frá Wilton sem heitir 2D. Hann er tilvalinn til að gera rósa mynstur. 

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir