Menu
Ostakaka með After Eight

Ostakaka með After Eight

Innihald

12 skammtar

Botn:

haustkex
sykur
kókosmjöl
egg
vanilludropar

Fylling:

rjómaostur frá Gott í matinn
sykur
flórsykur
vanillusykur
Salt á hnífsoddi
sýrður rjómi frá Gott í matinn
egg
plötur After Eight (20-25, má hafa fleiri)

Aðferð

  • Hitið ofninn í 170 °C.
  • Myljið haustkex, sykur og kókos vel í matvinnsluvél.
  • Bætið egginu saman við og blandið vel við mylsnuna.
  • Þrýstið mylsnunni í botninn á formi, gott er að láta botninn ná örlítið upp á kantana í forminu (smelluformi eða ferköntuðu ,,browniesformi“) og bakið botninn í um 6-8 mínútur.
  • Látið kólna.
  • Þeytið rjómaostinn mjög vel saman við sykurinn þar til myndast hefur krem.
  • Bætið við salti og sýrðum rjóma og þeytið áfram.
  • Bætið eggjum við, einu í einu og þeytið vel á milli.
  • Hellið fyllinguna í formið.
  • Bræðið after eight plöturnar í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði.
  • Notið skeið og dreifið súkkulaðinu yfir fyllinguna.
  • Bakið í um 60 mínútur.
  • Látið kökuna kólna vel áður en hún er skreytt með t.d. ferskum ávöxtum og auðvitað nokkrum after eight plötum.

Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal