Menu
Jarðarberjakaka með vanillukremi

Jarðarberjakaka með vanillukremi

Það tekur enga stund að baka þessa köku og hráefnin í þær eru oftast til heima. Vanillukremið kann mögulega að vefjast fyrir sumum en það tekur enga stund, er einfalt í framkvæmd og alveg einstaklega gómsætt. Vanillukremið hentar með kökum og passar líka vel sem fylling á milli tertubotna.

Innihald

1 skammtar

Jarðarberjakaka:

egg
sykur
hveiti
vanillusykur eða dropar
brætt smjör
fersk jarðarber, 12-18 stk.

Vanillukrem:

eggjarauður
sykur
maizenamjöl
rjómi frá Gott í matinn
mjólk
vanillustöng, 1-2 stk.

Jarðarberjakaka

  • Stillið ofnhita á 180°C
  • Þeytið egg og sykur vel saman.
  • Bætið hveiti og vanillusykri saman við og hrærið.
  • Bræðið smjörið og hellið því saman við og blandið vel saman.
  • Hellið í mjótt brauðform, gott er að tylla bökunarpappír í formið og hella síðan deiginu í formið.
  • Raðið jarðarberjunum fallega yfir deigið.
  • Bakið í miðjum ofninum í um 25 mínútur.

Vanillukrem

  • Setjið eggjarauður í skál og þeytið vel saman með sykri og maizenamjöli.
  • Hellið rjóma og mjólk í pott og látið suðuna koma upp.
  • Skrapið vanillustöngina og setjið vanillukornin út í mjólkina.
  • Takið pottinn af hitanum og þeytið eggjablönduna saman við rjómablandið.
  • Setjið pottinn aftur á hitann, lækkið hitann og hrærið stöðugt í á meðan vanillukremið byrjar að þykkna. Þetta tekur nokkrar mínútur, mögulega 5-10.
  • Kremið er tilbúið þegar það er orðið verulega þykkt og helst nokkurn veginn á skeiðinni þegar þú setur krem í hana.
  • Látið kremið kólna aðeins áður en það er borið fram með kökunni.

Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal