Menu
Eplabaka með þeyttum rjóma

Eplabaka með þeyttum rjóma

Eplabaka eða eplakaka að hætti Læknisins í eldhúsinu. Einnig er hægt að nota aðra ávexti í þessa köku eins og t.d. rabarbara, bláber, hindber og brómber.

Innihald

1 skammtar
Hveiti
Haframjöl
Smjör, við stofuhita
Sykur
Vanilludropar
Epli
Kanilsykur, eða eftir smekk

Meðlæti:

Rjómi frá Gott í matinn, þeyttur

Skref1

  • Blandið saman þurrefnum, smjöri og vanilludropum.

Skref2

  • Flysjið og skerið niður tvö epli.

Skref3

  • Smyrjið eldfast mót með olíu eða smjöri.

Skref4

  • Setjið deigið í botninn svo epli og svolítið deig á víxl.
  • Gott er að strá örlitlu af kanilsykri á eplin.

Skref5

  • Bakið í 180 gráðu heitum ofni í 25-30 mínútur þar til deigið er fallega gullinbrúnt.

Skref6

  • Berið fram með þeyttum rjóma.

Höfundur: Ragnar Freyr Ingvarsson