Menu
Sörur með Dumle súkkulaði

Sörur með Dumle súkkulaði

Dásamlegar sörur með Dumle súkkulaði. Úr einni uppskrift fást í kringum 50 sörur 

Innihald

1 skammtar

Botnar

eggjahvítur
möndlumjöl
flórsykur
salt

Dumle-krem

Dumle karamellur
volgt síróp
smjör við stofuhita
eggjarauður
rjómi frá Gott í matinn
rjómasúkkulaði

Hjúpur

suðusúkkulaði

Botnar

  • Eggjahvítur og salt er stífþeytt og flórsykrinum og möndlumjölinu svo blandað varlega saman við með sleif.
  • Deigið er sett í sprautupoka og sprautað í litla hringi á bökunarpappír.
  • Bakið botnana í 10-12 mínútur við 180 gráður.
  • T.d. er hægt að baka botnana að kvöldi til og byrja svo á kreminu daginn eftir.

Krem

  • Dumle karamellurnar eru bræddar í potti með rjómanum og rjómasúkkulaðinu er svo bætt við þegar karamellurnar hafa bráðnað. Það á ekki að sjóða í karamellunni, heldur hafa hana á vægum hita.
  • Eggjarauðurnar eru stífþeyttar.
  • Volgu sírópinu bætt út í rauðurnar og þeytt í um 1 mínútu.
  • Smjörinu bætt við og þeytt.
  • Að lokum er karamellublandan sett út í og kremið hrært varlega saman.
  • Kremið er svo sett í sprautupoka og sprautað á hvern botn fyrir sig. Gott er að laga kremið til með spaða svo það leggist vel yfir alla kökuna. Þegar kremið er komið á er best að setja kökurnar í frysti eða ísskáp áður en súkkulaðihjúpurinn er settur á.

Hjúpur

  • Súkkulaðið er hitað í skál í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði.
  • Sörunum er dýft ofan í súkkulaðið og það látið leka aðeins af þeim. Gott er að hafa blautan þvottapoka sér við hlið til að þurrka fingurna á milli svo sörurnar verði ekki kámugar.
  • Best er að borða sörurnar aðeins kaldar og því upplagt að geyma nokkrar í ísskápnum og hinar í frysti.

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir