Menu
Blaut súkkulaðikaka með myntukremi og After Eight

Blaut súkkulaðikaka með myntukremi og After Eight

Geymið kökuna í kæli, gott er að láta kökuna standa við stofuhita í rúmlega 20 mínútur áður en hún er borin fram. Einstaklega góð með rjóma, enda gerir rjómi allt betra!

Innihald

1 skammtar

Botn:

dökkt kakó
heitt vatn
sýrður rjómi frá Gott í matinn
smjör við stofuhita
egg
sykur
vanilludropar
hveiti
lyftiduft
salt
pakki súkkulaðibúðingur (óblandaður)
pakkar af Oreo kexkökum

Myntukrem:

smjör við stofuhita
flórsykur
piparmyntudropar
rjómi frá Gott í matinn
dropar af grænum matarlit (best að nota gel matarlit) 1-2 dropar

Skraut:

After Eight
Oreo kexkökur (hakkaðar)

Blaut súkkulaðikaka

  • Hitið ofninn í 180 gráðu hita og setjið smjörpappír í tvö hringlaga bökunarform (um 24cm).
  • Blandið kakói og heitu vatni saman og hrærið vel, bætið svo sýrða rjómanum saman við og setjið til hliðar.
  • Hrærið smjör og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt.
  • Blandið einu eggi í senn út í og hrærið stuttlega á milli.
  • Bætið vanilludropum saman við.
  • Hrærið saman hveiti, lyftidufti, salti og innihaldinu úr súkkulaðibúðingnum.
  • Blandið þurrefnunum saman við deigið ásamt súkkulaðiblöndunni smátt og smátt í einu.
  • Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Gott er að skafa hliðarnar á skálinni og hræra vel.
  • Raðið Oreo kexkökum í botninn á kökuforminu, ofan á smjörpappirinn. Gott er að geyma 2 Oreo kexkökur til að skreyta kökuna enn frekar.
  • Hellið deiginu jafnt í bökunarformin og jafnið það út varlega með spaða eða sleif, passið ykkur að Oreo kexið fari ekki á flakk.
  • Bakið í miðjum ofni í 20 mínútur eða þar til tannstöngull kemur næstum hreinn upp úr miðju kökunnar.
  • Kakan er aðeins blaut í sér út af súkkulaðibúðingnum og á að vera þannig, það gerir hana einstaklega mjúka og góða.
  • Kælið kökuna alveg áður en þið setjið kremið á hana.

Myntukrem

  • Hrærið smjörið þar til það verður ljóst og létt.
  • Bætið flórsykri saman við smátt og smátt í einu og hrærið vel á milli.
  • Blandið rjómanum saman við ásamt piparmyntudropum.
  • Skafið hliðarnar á skálinni og hrærið þar til kremið er orðið slétt og fínt.
  • Ef ykkur finnst kremið vera of þykkt þá er um að gera að bæta örlitlum rjóma saman við og hræra vel.
  • Setjið matarlit saman við og hrærið.

Samsetning

  • Setjið kökubotnana á kökudisk og snúið Oreo hliðinni upp.
  • Setjið krem á milli botnanna tveggja og utan um alla kökuna.
  • Notið restina af kreminu til að skreyta að vild. Það er fallegt að skera After Eight súkkulaði til helminga, horn í horn og setja ofan á. Ég notaði sprautustút frá Wilton 1M til að skreyta kökuna.
  • Hakkið síðan 2 Oreo kex og stráið yfir kökuna í lokin til að gefa henni fallegra útlit og betra bragð.
Samsetning

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir