Smjör og sykur þeytt saman í hrærivélinni þar til blandan er létt og ljós.
Þá er einu eggi í einu bætt við og hrært saman.
Hveiti, salti og lyftidufti er blandað saman í skál, fínt að sigta það saman.
Síðan er hveitiblöndunni, vanilludropunum og mjólkinni bætt saman við í tveimur pörtum.
Í lokinn er sykurskrautinu blandað saman við.
Skiptið deiginu á milli í 3 smurð form.
Bakið í ofni í 30-35 mínútur, eða þar til botnarnir eru orðnir dökk brúnir.
Þó kakan verði svolítið dökk að utan þá er hún fallega ljós gul að innan.
Gott er að klippa smjörpappír og setja í botninn á mótinu og bera vel af smjöri í kantana til að kakan renni úr forminu.
Einnig að bera deigið vel út í alla kanta á mótinu svo að það verði sem minnst bunga í miðjunni þegar kakan hefur bakast.
Skref2
Smjörkremið er búið til á meðan kakan er í ofninum.
Smjörið er þeytt þar til það er orðið létt.
Flórsykri og öðrum hráefnum er blandað varlega saman við og þeytt saman.
Skref3
Þegar kakan er tilbúin er hún látin kólna alveg áður en kremið er sett á.
Það er gott að nota sprautupoka til að setja kremið á milli botnanna svo hæðirnar verði jafnar.
Látið efsta botninn snúa á hvolfi svo að toppurinn hafi skarpa enda.
Látið kremið fara aðeins út fyrir kantanna svo það sé þægilegt að smyrja endana.
Til að jafna endana notið beinan kökuspaða en ef þið eigið ekki þannig þá er hægt að nota beina bakhlið á stórum hníf.
Passið að taka eins og 1 bolla af kremi til hliðar til að skreyta toppinn, þið getið notað hvaða stút sem þið eigið og ykkur finnst flottur til að skreyta toppinn.
Síðan getið þið leikið ykkur með sykurskrautið og skreytt hana eins og þið viljið að utan.