Menu
Ofnbakaðar kjúklingabringur með rjóma, bræddum osti, vínberjum og ólífum

Ofnbakaðar kjúklingabringur með rjóma, bræddum osti, vínberjum og ólífum

Tillögur að meðlæti: hrísgrjón og gufusoðið spergilkál, kartöflumús eða soðið pasta.

Innihald

4 skammtar
kjúklingabringur
sjávarsalt og svartur pipar
smjör
skallottulaukar, saxaðir
vínber, rauð
Kalamataólífur, steinlausar
ferskt rósmarín, fínsaxað
hvítvín
kjúklingasoð eða sama magn af vatni og kjúklingakraftur eins og segir á leiðbeiningunum
rjómi eða matreiðslurjómi
gratínostur

Aðferð

  • Kveikið á ofninum og stillið hann á 200°C.
  • Þerrið bringurnar og kryddið ríkulega með salti og pipar.
  • Setjið smá smjörklípu á pönnu og steikið bringurnar gullnar báðum megin til að loka þeim.
  • Færið bringurnar svo yfir í eldfast mót.
  • Svissið laukinn, vínberin og ólífurnar í örstutta stund á sömu pönu og dreifið yfir kjúklingabringurnar.
  • Setjið vín, kjúklingasoð, rjóma og rósmarín á pönnuna og látið sjóða niður í um 10 mínútur.
  • Hellið soðinu yfir bringurnar og dreifið loks ostinum yfir þær.
  • Bakið í ofni í 15 mínútur eða þar til bringurnar eru tilbúnar og eldaðar í gegn.
  • Eins er gott að nota kjúklingaleggi eða –læri í þennan rétt en þá þarf bara að lengja eldunartímann um a.m.k. 30 mínútur.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir