Menu
Ofnbakaðar nachos með nautahakki, baunum og osti

Ofnbakaðar nachos með nautahakki, baunum og osti

Innihald

4 skammtar
nautahakk
repjuolía
niðursoðnar pintobaunir, skolaðar
salsasósa
nachosflögur
rifinn Óðals Cheddar
rifinn mozzarellaostur frá Gott í matinn
vorlaukar, skornir í þunna bita
stórt handfylli af ferskum kóríander, saxað
stórt grænt chillí, skorið í örþunnar sneiðar

Meðlæti

sýrður rjómi frá Gott í matinn
salsasósa

Aðferð

  • Stillið ofninn á 180°.
  • Steikið hakkið á pönnu. Bætið baununum og salsasósunni saman við.
  • Setjið helminginn af nachosflögunum á bökunarplötu klædda bökunarpappír eða í stórt  eldfast mót. Dreifið helmingnum af hakkblöndunni yfir. Sáldrið næst helmingnum af ostunum ofan á. Bakið í 10 mínútur.
  • Takið úr ofninum og sáldrið restinni af nachosflögunum ofan á, þá afganginum af hakkinu og loks hinum helmingnum af ostinum. Setjið aftur í ofninn og bakið áfram í aðrar 10 mínútur.
  • Sáldrið þá vorlauk, chillí og kóríander yfir og berið strax fram með sýrðum rjóma og salsasósu.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir