Menu
Nautapottréttur

Nautapottréttur

Þennan pottrétt hefur mamma mín búið til um árabil og ég man ég hreinlega elskaði þegar hann var í matinn. Ég hef oft útbúið þennan rétt fyrir mína fjölskyldu og loksins kom ég honum niður á blað til að fleiri geti notið hans.

Þessi uppskrift dugar fyrir 4.

Innihald

1 skammtar
nautagúllas
tómatpúrra (150-200g eða eftir smekk)
laukur
rauð paprika
gulrætur
rjómaostur frá Gott í matinn
matreiðslurjómi frá Gott í matinn
salt, pipar, karrý, paprikukrydd og kraftur

Meðlæti

soðin hrísgrjón

Skref1

  • Saxið niður lauk, skerið gulrætur í sneiðar og papriku í strimla.
  • Steikið laukinn á meðalhita upp úr olíu og karrý þar til hann mýkist. Bætið gulrótum og papriku saman við, ögn meiri olíu og salti og pipar og færið yfir á disk.

Skref2

  • Léttsteikið gúllasið í olíu á sömu pönnu, nóg er að rétt brúna það á hliðunum því það mun fulleldast þegar pottrétturinn mallar.
  • Bætið tómatpúrru á kjötið á pönnunni, rjómaosti og matreiðslurjóma og hrærið vel.
  • Hellið grænmetinu saman við og kryddið réttinn til með salti, pipar, paprikudufti og krafti.

Skref3

  • Gott er að leyfa réttinum að malla í 30-60 mínútur og bera fram með hrísgrjónum.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir