Menu
Mexíkósk sæt kartöflusúpa og mexíkóskar brauðmöffins

Mexíkósk sæt kartöflusúpa og mexíkóskar brauðmöffins

Sætar kartöflur eru ekki bara góðar sem meðlæti, þær henta líka fullkomlega í súpugerð. Þessi súpa er einstaklega bragðgóð og ekki skemmir fyrir ef þú hefur tíma til að baka brauðbollurnar líka.

Innihald

4 skammtar
sæt kartafla, afhýdd og skorin í bita
litlir laukar, saxaðir
hvítlauksrif, söxuð
rauð chillí, fræhreinsuð og grófsöxuð
smjör
niðursoðinn kjúklingakraftur
vatn
matreiðslurjómi
safi og börkur af einni límónu

Meðlæti

stór lárpera eða 2 smáar, skorin í litla bita
sýrður rjómi frá Gott í matinn, eftir smekk
hnefafylli af fersku kóríander
af rifnum Óðals cheddarosti
nachosflögur, eftir smekk

Mexíkóskar brauðmöffins (12 stk) ;

hveiti
lyftiduft
salt
rifinn mozzarellaostur
maísbaunir, niðursoðnar eða frosnar
salsasósa
chorizopylsa, skorin í smáa bita
gulrót, fínrifin
repjuolía
egg
hrein jógúrt frá Gott í matinn

Súpa, aðferð

  • Steikið sæta kartöflubita, lauka og chillí upp úr smjöri.
  • Bætið vatni, krafti og matreiðslurjóma saman við.
  • Látið malla undir loki í 15 mínútur.
  • Maukið súpuna með töfrasprota eða setjið í matvinnsluvél.
  • Setjið límónusafa og börk út í.
  • Hellið í skálar og berið strax fram með meðlætinu.

Mexíkóskar brauðmöffins, aðferð

  • Stillið ofninn á 180°.
  • Blandið fyrstu átta hráefnunum saman í skál.
  • Geymið samt 1 dl af ostinum til að setja yfir möffinsið áður en það fer í ofninn.
  • Pískið saman í annarri skál, eggjum, olíu og jógúrti. Blandið varlega saman við hin hráefnin. Reynið að hræra ekki of lengi.
  • Setjið í tólf möffinsform og sáldrið afganginum af ostinum yfir. Bakið í 25-30 mínútur. Berið fram með súpunni.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir