Skref1
- Saxið laukinn og sveppina smátt og steikið upp úr smjörinu, stráið salti og pipar.
- Setjið brauðraspinn út á og veltið vel saman með sleif, látið kólna.
- Merjið kæfuna saman við með sleif.
Skref2
- Brúnið nautafilletið á öllum hliðum á snarpheitri pönnu, kryddið með salti og pipar, látið kólna.
Skref3
- Fletjið smjördeigið út í 3mm þykkt, dreifið hluta af maukinu á deigið á flöt sem er á stærð við kjötið.
- Leggið kjötið ofan á og hyljið með restinni af maukinu.
- Penslið brúnir deigsins með hrærðu eggi og brjótið deigið yfir þannig að það liggi þétt utan um kjötið.
- Pressið brúnirnar saman með gaffli.
- Penslið deigið að utan með egginu og gerið 2 smá göt ofan á deigið.
Skref4
- Setjið í 200° heitan ofn og bakið í um 20 mín eða þar til steikarmælir sýnir 58° í kjarna.
- Takið steikina út og leyfið henni að jafna sig í 10 mínútur áður en hún er skorin.
Madeira sósa
- Setjið soð og Madeira í pott og þykkið með smjörbollunni, litið með sósulit, bragðbætið með salti og pipar.
Höfundur: Klúbbur matreiðslumeistara