Menu
Lambafillet með stökkri puru og bernaise sósu

Lambafillet með stökkri puru og bernaise sósu

Hér er á ferðinni uppskrift að sannkallaðri matarveislu. Lamb, bernaise og kartöflur - er hægt að biðja um meira?

Innihald

6 skammtar

Lambafillet

lamafillet (1 stk á mann)
gott sjávarsalt
nýmalaður pipar
ferskar timjan greinar (2-3 stk)
ólífuolía
smjör

Bernaise sósa

eggjarauður
smjör
nautateningur eða annar kjötkraftur
bernaise essence
þurrkað estragon eða 1 msk. ferskt
salt og pipar
safi úr hálfri sítrónu

Hasselback kartöflur

smáar kartöflur
rauðlaukur
Óðals Tindur eða sterkur Gouda
smjör, brætt
salt og pipar
steinselja til skrauts

Lambafillet

  • Ef ætlunin er að hafa lambakjöt í kvöldmat er gott að taka það úr ísskápnum að morgni. Snyrta bitana, skera af auka fitu og sinar ef einhverjar eru og skera í fituna tíglamynstur niður að kjötinu. Gætið þess að skera ekki í kjötið sjálft.
  • Kjötið er svo kryddað vel með salti og pipar. Sett í fat og ólífuolíu hellt yfir kjötið og því velt vel upp úr olíunni. Svo er fatið sett inn í ísskáp, engin filma yfir og fituhliðin látin snúa upp.
  • 1 klst áður en kjötið er eldað er gott að taka það úr ísskápnum og leyfa því að ná stofuhita.
  • Hitið ofn í 180 gráður. Bræðið 50 g af smjöri á pönnu við meðalháan hita, setjið timjan greinarnar í smjörið og leyfið þeim að krauma með. Steikið kjötið svo á fituhliðinni í smjörinu í góðar 4 mín. eða þar til puran er gullin og stökk. Snúið þá kjötinu við og stingið inn í ofn í 10-12 mín. Þá ætti steikin að vera fallega bleik í miðjunni. Ef þið viljið gegnsteikja kjötið er vissara að hafa það í 15-17 mín. í ofninum.
  • Þegar kjötið er tekið út er smjörinu og fitunni, sem er á pönnunni, ausið yfir kjötið. Leyfið því svo að standa í 10 mín. áður en það er skorið.
  • Berið fram með bernaise-sósu og bragðmiklum hasselback-kartöflum með osti og bökuðum rauðlauk.

Bernaise sósa

  • Bræðið smjörið með kjötkraftinum.
  • Takið af hitanum og leyfið aðeins að rjúka.
  • Setjið eggjarauðurnar í hitaþolna skál, stál eða gler.
  • Setjið vatn í pott, hleypið upp suðunni og lækkið svo alveg undir.
  • Leggið skálina ofan á pottinn, gætið þess að botninn snerti ekki vatnið og þeytið eggjarauðurnar þar til ljósar og léttar. Ég nota lítinn rafmagnshandþeytara.
  • Takið pottinn með skálinni af hitanum. Hellið smjörinu mjög rólega saman við eggin í mjórri bunu og þeytið stanslaust á meðan, þetta tekur um 5-7 mínútur.
  • Kryddið svo með estragoni og bernaise essence.
  • Smakkið til með sítrónu, salti og pipar.
  • Sósan geymist vel undir plastfilmu við stofuhita í 2-3 klst, borin fram stofuheit eða hituð rólega upp yfir vatnsbaði.

Hasselback kartöflur

  • Skerið þunnar rifur í kartöflunar og gætið þess að skera ekki alla leið í gegn.
  • Skerið ostinn í litla bita og stingið 3-4 bitum í hverja kartöflu.
  • Leggið kartöflurnar í eldfast mót og setjið laukinn í bátum inn á milli.
  • Hellið bræddu smjöri yfir allt saman og kryddið með salti og pipar.
  • Bakið við 180 gráður í 40 mínútur eða þar til kartöflurnar eru eldaðar í gegn.
  • Stráið steinselju yfir og berið fram.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir