Menu
Lambafille með rjómalagaðri sveppasósu

Lambafille með rjómalagaðri sveppasósu

Lambakjöt, rjómalöguð sósa og bakaðar kartöflur. Hér er svo sannarlega á ferðinni fullkominn helgar- eða hátíðarmatur.

Innihald

6 skammtar

Lambafille:

lambafille
smjör
ferskt timjan, 2-3 greinar
salt og pipar

Rjómalöguð sveppasósa:

sveppir
hvítur laukur
hvítlauksrif
smjör
hvítvín (má sleppa)
rjómi
lárviðarlauf
ferskt timjan, 4-5 greinar
smjörbolla til þykkingar (eða sósujafnari)
salt og pipar

Kartöflur - Pommes Anna:

kartöflur
smjör
salt og pipar

Lambafille

  • Látið kjötið standa við stofuhita í klukkustund áður en það er steikt til að tryggja að það verði mjúkt eftir steikingu.
  • Skerið létt í fituna til að opna hana upp, saltið og piprið ríkulega.
  • Bræðið smjör á pönnu og þegar það er bráðið bætið timjan greinunum út í.
  • Setjið því næst lambið varlega á pönnuna með fituna niður. Steikið þangað til að hún hefur tekið á sig fallegan gullinbrúnan lit og steikið svo á hinni hliðinni.
  • Það er gott að ausa bráðnu smjörinu upp á puruna til að bæta bragð hennar ennþá frekar.
  • Þegar lambið er fallega brúnt að utan er það sett í 180 gráðu heitan ofn og bakað þangað til að kjarnhiti nær 50-54 gráðum (eftir smekk). Hvílið í nokkrar mínútur áður en það er skorið.

Rjómalöguð sveppasósa

  • Skerið sveppina í sneiðar eða bita. Flysjið og skerið laukinn og hvítlaukinn smátt.
  • Bræðið smjör í potti og steikið fyrst laukinn í nokkrar mínútur við miðlungshita. Bætið svo sveppunum og lárviðarlaufunum saman við og steikið um stund þar til sveppirnir fara að taka lit. Saltið og piprið.
  • Bætið því næst hvítlauknum saman við og steikið áfram við lágan hita þar til að allur vökvi af sveppunum er gufaður upp og sveppirnir fara að karmelliserast.
  • Hellið hvítvíninu á pönnuna og sjóðið upp áfengið. Bætið því næst lambasoðinu og timjaninu saman við og sjóðið niður um þriðjung. Saltið og piprið eftir smekk.
  • Bætið rjómanum saman við og hitið að suðu. Fjarlægið lárviðarlaufin og timjan greinarnar með gaffli.
  • Þykkið sósuna með smjörbollu eða sósujafnara. Smakkið sósuna til.

Kartöflur - Pommes Anna

  • Sneiðið kartöflurnar næfurþunnt með mandólíni.
  • Penslið eldfast mót með smjöri. Raðið kartöflunum þétt niður og penslið með smjöri á milli laga auk þess að salta og pipra reglulega.
  • Þrýstið kartöflunum niður í mótið. Penslið efsta lagið með smjöri.
  • Bakið á grillinu við óbeinan hita í 45-55 mínútur.

Höfundur: Ragnar Freyr Ingvarsson