Menu
Ofnbakaðar kjúklingalundir í mexíkóskri sósu með fersku kínóasalati og sýrðum rjóma

Ofnbakaðar kjúklingalundir í mexíkóskri sósu með fersku kínóasalati og sýrðum rjóma

Innihald

4 skammtar

innihald

kjúklingalundir
olía
sjávarsalt og svartur pipar
rifinn mozzarellaostur frá Gott í matinn

mexíkósk sósa

olía
laukur, saxaður
hvítlauksrif, saxað
niðursoðnir maukaðir tómatar, safi skilinn frá
tómatamauk
lárviðarlauf
rautt chillí, saxað
sýrður rjómi frá Gott í matinn
ferskur kóríander, saxaður
sjávarsalt og svartur pipar

kínóasalat

kínóa
vatn
grænmetisteningur
ólívuolía
límóna, safi og fínrifinn börkur
rautt chilí, fræhreinsað og fínsaxað
mangó, skorið í teninga
handfylli af fersku kóríander, saxað
spínat eða klettasalat, saxað
svartur pipar

meðlæti

sýrður rjómi frá Gott í matinn
límóna, skorin í báta

Aðferð

  • Byrjið á að sjóða kínóa. Setjið það  í pott ásamt vatni og grænmetisteningi. Látið suðuna koma upp. Látið þá lok á pottinn. Lækkið hitann og látið malla í 10 mínútur. Takið pottinn af hellunni og látið standa með lokinu á í 5 mínútur. Takið þá lokið af og látið kólna í pottinum.
  • Lokið kjúklingabringunum á pönnu upp úr smá olíu, passið að steikja ekki í gegn. Saltið og piprið. Leggið í olíuborið eldfast mót.
  • Stillið ofninn á 180°.
  • Steikið laukana í smá stund. Setjið  tómata, tómatamauk og lárviðarlauf saman við og látið malla á vægum hita í 15 mínútur. Hendið lárviðarlaufinu.
  • Hellið maukinu í matvinnsluvél eða blandara. Setjið 1 dl af sýrðum rjóma saman við ásamt, chilí og kóríander. Maukið og smakkið til með salti og pipar. Hellið sósunni yfir kjúklinginn og sáldrið 1 dl af rifnum mozzarellaosti yfir. Bakið í 15-20 mínútur.
  • Setjið límónusafa, börk og ólívuolíu saman við soðið kínóað. Blandið öðrum hráefnum saman við og smakkið til með pipar.
  • Berið fram með sýrðum rjóma og límónubátum.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir