Menu
Fylltur kjúklingur með villisveppaosti, sveppum og eplum

Fylltur kjúklingur með villisveppaosti, sveppum og eplum

Innihald

4 skammtar

Kjúklingur:

heill kjúklingur reyna að velja stóran
olía
rósmarín

Fylling:

Salt og nýmalaður svartur pipar
rifinn villisveppaostur
rjómaostur með svörtum pipar
laukur, saxaður
sveppir, saxaðir
epli skorið í smáa bita
spínat saxað
ristaðar furuhnetur
rósmarín þurrkað

Skref1

  • Þerrið kjúklinginn vel, smyrjið með olíu og kryddið með rósmarín, salti og nýmöluðum svörtum pipar.

Skref2

  • Blandið saman fyllingunni og setjið 2/3 af fyllingunni inn í kjúklinginn.
  • Losið skinnið á kjúklingum frá og setjið restina af fyllingunni undir skinnið á kjúklingnum.

Skref3

  • Steikið kjúklinginn við 170°C í 80-100 mínútur eða þar til kjúklingurinn er steiktur í gegn.
  • Berið fram með ofnbökuðum sætkartöflum og kartöflubátum.

Höfundur: Árni Þór Arnórsson