Menu
Chili con Carne

Chili con Carne

Fyrir 6 manns – einfaldur réttur þó innihaldslýsingin sé löng.

Með chiliréttinum er afbragðsgott að bera fram hrísgrjón, maísbaunir, salat og kalda sósu.

Innihald

1 skammtar
Olía
Smjör
Gulir laukar
Hvítlauksrif
Kúmen, heilt
Gul paprika
Rauð paprika
Græn paprika
Nautahakk
Saltflögur, eftir smekk
Grófur svartur pipar, eftir smekk
Chiliflögur, eftir smekk
Worchestershiresósa
Grænmetiskraftur
Niðursoðnir saxaðir tómatar
Bakaðar baunir
Nýrnabaunir
Hunang
Rjómaostur með svörtum pipar
Suðusúkkulaði
Steinselja til að skreyta með

Skref1

  • Hitið olíu og smjör á pönnu eða notið djúpan pott.
  • Skerið laukinn og hvítlaukinn smátt og bætið við ásamt kúmeni.
  • Látið laukinn verða glæran og finnið dásamlegan ilminn fylla eldhúsið.

Skref2

  • Skerið paprikurnar i teninga og bætið við.
  • Látið svitna í pottinum.

Skref3

  • Setjið nautahakkið saman við og látið það brúnast með grænmetinu.
  • Kryddið með salti, pipar, chiliflögum og worchestershiresósu.
  • Farið varlega með chiliflögurnar. Það þarf oftast ekki mikið af þeim.

Skref4

  • Opnið dósirnar og setjið innihaldið í pottinn.
  • Hrærið og látið suðuna koma upp og lækkið þá hitann eitthvað.
  • Látið malla hægt og rólega í klukkutíma ef hægt er.

Skref5

  • Setjið hunangið, rjómaostinn og súkkulaðið út í og látið það bráðna með.

Skref6

  • Skreytið með steinselju þegar borið er fram.

Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal