Menu
Kjötbollur í ostasósu

Kjötbollur í ostasósu

Hér kemur ansi djúsí réttur sem á sannarlega rétt á sér á köldum vetrarkvöldum. Ekki síst eftir góða útivist í nöpru vetrarveðri. Satt best að segja þarfnast rétturinn engrar réttlætingar. Hann er fullkominn hvenær sem er! Heimabakaðar brauðbollur passa líka fullkomlega með.

Innihald

1 skammtar

Kjötbollur:

hvítt brauð, skorið í teninga
matreiðslurjómi
nautahakk
fennelfræ
þurrkað timjan
egg
fínrifinn börkur af einni sítrónu
sjávarsalt og svartur pipar
örlítið hveiti
smjör og olía til steikingar

Ostasósa:

smjör
hveiti
matreiðslurjómi
fínrifinn parmesanostur
rifinn mozzarella ostur í poka
rifinn gratínostur í poka
sjávarsalt og svartur pipar

Hindberjasulta:

frosin hindber
sykur
eplasíderedik

Meðlæti:

brauðbollur, forbakaðar eða heimatilbúnar

Skref1

  • Setjið brauðið í stóra skál og hellið ½ dl af matreiðslurjóma yfir. Látið standa í 5 mínútur.
  • Myljið fennelfræin í morteli eða með sleif. Setjið út í skálina ásamt nautahakki, timíani, eggi og sítrónuberki. Blandið saman með höndunum. Smakkið til með salti og pipar.
  • Mótið síðan bollur úr farsinu. Stærð fer eftir smekk, en ætti að duga í 20 meðalstórar bollur.
  • Sáldrið örlitlu hveiti yfir bollurnar og steikið upp úr blöndu af ólífuolíu og smjöri. Setjið í eldfast mót.

Skref2

  • Bætið 1 msk. af smjöri á pönnuna sem þið steiktuð kjötbollurnar á. Hrærið hveiti saman við og látið sjóða.
  • Hellið matreiðslurjóma út í smátt og smátt og hrærið stöðugt í þar til sósan þykknar. Takið af hitanum og setjið parmesean ost saman við. Hrærið og smakkið til með salti og pipar.
  • Hellið sósunni yfir bollurnar og sáldrið mozzarella- og gratínosti yfir.
  • Bakið í ofni við 220° í 15-20 mínútur.
  • Útbúið hindberjasultu á meðan.

Skref3

  • Setjið hindber og sykur í pott á háum hita. Hrærið.
  • Látið malla á meðal hita þegar sykurinn er bráðinn, í 10 mínútur eða svo. Setjið þá edikið saman við. Hrærið og látið kólna í skál eða krukku.
  • Dreifið smá sultu yfir og berið fram með brauðbollum og afganginum af sultunni.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir