Menu
Kjötbollur í ljúffengri sósu

Kjötbollur í ljúffengri sósu

Ákaflega bragðgóðar kjötbollur og sósan sem þær hvíla í er afar ljúffeng og seðjandi

Innihald

1 skammtar

Kjötbollur:

nautahakka
egg
brauðmylsna
matreiðslurjómi
steinselja, fínsöxuð
garam masala
sjávarsalt
svartur pipar
vatn
kjúklingateningur eða 1 msk kjúklingakraftur

Sósa:

olía
laukur, fínsaxaður
hvítlauksrif, marin
karrí
kanilstöng
rúsínur
lárviðarlauf
niðursoðnir hakkaðir tómatar, án safa
matreiðslurjómi
sjávarsalt og svartur pipar eftir smekk

Skref1

  • Byrjið á að útbúa sósuna.
  • Mýkið lauk og hvítlauk í góða stund í olíu og karrí.
  • Setjið kanilstöngina, rúsínur og lárviðarlauf saman við og hrærið.
  • Sigtið hökkuðu tómatana og blandið þeim varlega saman við hráefnin á pönnunni/í pottinum.
  • Bætið loks matreiðslurjómanum saman við og hrærið.
  • Setjið lok á og látið malla á lágum hita í 15 mínútur.

Skref2

  • Á meðan sósan mallar er byrjað á bollunum.
  • Leggið brauðmylsnuna í bleyti í matreiðslurjómanum í 5 mínútur og hellið svo vökvanum af.
  • Setjið hráefnið í skál: nautahakk, brauðmylsnu, egg, steinselju og krydd. Best er að nota hendurnar til að hræra öllu saman.
  • Síðan eru mótaðar bollur úr hakkinu, en ágætt er að miða við eina matskeið fyrir hverja bollu.
  • Bollunum er rúllað á milli handanna og þær lagðar til hliðar.

Skref3

  • Setjið hálfan lítra af vatni í pott ásamt kraftinum og þegar suðan er komin upp eru bollunar settar út í, í nokkrum skömmtum, og þær látnar sjóða á vægum hita í u.þ.b. 5 mínútur.
  • Síðan eru bollurnar veiddar upp úr, settar út í sósuna góðu og þeim leyft að malla þar í stutta stund.
  • Réttinn má fram með sítrónubátum og kúskús eða hrísgrjónum.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir