Menu
Kardemommulengjur með eplafyllingu

Kardemommulengjur með eplafyllingu

1. Settu þurrefnin í skál

2. Blandaðu saman í lítilli skál: egg, vatn og brætt smjör.

3. Helltu eggjablönduninni út í þurrefnin og byrjaðu að hræra í deig. Ef það er of þurrt er í lagi að bæta aðeins við af volgu vatni - kannski 1/2 dl.  Bættu við hveiti eftir þörfum. Hnoðaðu þar til deigið er orðið gott og sleppir frá hliðum skálarinnar. Láttu það hefast á hlýjum stað þar til það er orðið rúmlega tvöfalt að stærð.

4. Skiptu deiginu í tvennt, hnoðaðu það og flettu það út með kökukefli í langan, frekar mjóan ferhyrning. Það er gott að vera með bökunarpappír undir deiginu - þá er auðveldara að færa það yfir á ofnplötuna.

5. Smyrðu deigið í miðjunni með smjöri, stráðu aðeins af kanilsykri yfir smjörið og raðaðu svo eplum niður eftir smjörinu. Í hina lengjuna er tilvalið að setja epli og súkkulaði.

 

6. Klipptu í deigið á ská meðfram hliðunum á deiginu - klippt er u.þ.b. 2 cm.

7. Fléttaðu/leggðu flipana sem þú varst að klippa ská á móti hverjum öðrum og lokaðu þannig fléttunni þinni. Penslaðu hana síðan með þeyttu eggi og stráðu perlusykri yfir.

 

8. Bakaðu eplalengjuna neðarlega í ofninum í um 20 - 27 mínútur við 200°C.

Innihald

1 skammtar
hveit (6-7 dl)
þurrger
sykur
kardemommur, malaðar
salt
volgt vatn
brætt smjör
egg

Fylling:

smjör
epli, afhýdd og skorin í þunna báta
smátt saxað suðusúkkulaði
kanilsykur (4-5 msk)

Til að pensla:

egg
perlusykur

Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal