Skref1
- Setjið gerið í litla skál með 2 msk. af volgu vatni og 1 tsk. af sykri og látið standa í um 10 mínútur.
Skref2
- Hnoðið allt nema Maldon-saltflögurnar lauslega saman í hrærivél.
Skref3
- Setjið deigið í skál ásamt um einni lófafylli af rúgmjöli sem sett er undir og yfir deigið.
- Breiðið plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefa sig í um 1 klukkustund.
- Geymið það svo yfir nótt í kæliskáp en hægt er að geyma það með góðu móti í allt að 4 daga.
Skref4
- Takið deigið úr kæliskápnum og mótið brauðhleif.
- Látið hann hefast í 1–1½ klst. á hlýjum stað og breiðið plastfilmu yfir.
- Á meðan er ofninn hitaður í 250°C.
Skref5
- Penslið brauðhleifinn með vatni og stráið saltflögum yfir hann áður en hann er settur í ofninn.
- Lækkið hitann í 200°C og bakið brauðið í 40-50 mínútur.
Skref6
- Takið það úr ofninum og látið kólna á bökunargrind.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir