Menu
Eftirréttur með skyri, piparkökum og bláberjum

Eftirréttur með skyri, piparkökum og bláberjum

Jólalegur og góður eftirréttur. 

Innihald

1 skammtar
Ísey skyr bláber eða vanilla
íslenskt smjör
rjómi frá Gott í matinn
makkarónukökur
Bláber
Súkkulaðispænir

Aðferð

  • Takið fram 4 skálar og myljið 5 makkarónukökur í botninn á hverri skál.
  • Bræðið smjör og hellið yfir makkarónukökurnar.
  • Þeytið 250 ml af rjóma og blandið tveimur dósum af bláberja- eða vanilluskyri við rjómann með sleif.  
  • Næst er skyrblandan sett yfir makkarónukökurnar.
  • Ofan á er hægt að setja hvað sem hugurinn girnist. T.d. fersk bláber, súkkulaðispænir eða muldar piparkökur.

Höfundur: Tinna Alavis