Menu
Brownie ískaka með myntu

Brownie ískaka með myntu

Þið getið annað hvort farið eftir þessari uppskrift eða nota djöflakökumix út úr búð til að flýta fyrir. Gott í matinn mælir samt eindregið með þessari uppskrift sem gerir ískökuna ómótstæðilega. Mikilvægt er að báðir botnarnir séu bakaðir í jafnstórum kökuformum.

Kakan geymist vel í frysti í 30 daga. 

Innihald

1 skammtar

Brownie:

Sykur
Egg
Smjör
Suðusúkkulaði
Hveiti

Myntuís:

Rjómaostur frá Gott í matinn, við stofuhita
Sykur
Mjólk
Myntudropar
Rjómi frá Gott í matinn
Flórsykur
Siríus pralín rjómasúkkulaði með piparmyntu
Rauður gel matarlitur, (1-2 dropar)

Toppur:

Rjómi frá Gott í matinn
Súkkulaðisíróp
Rauður skrautsykur

Brownie

  • Hitið ofninn í 170 gráður og setjið smjörpappír í botninn á tveimur 20-22 cm hringlaga smelluformum.
  • Formin sem þið notið fyrir þessa uppskrift þurfið þið svo að nota þegar þið setjið ísinn og kökurnar saman í form.
  • Þeytið egg og sykur saman í skál þar til blandan verður ljós og létt.
  • Bræðið smjör og súkkulaði saman í potti yfir lágum hita og hrærið þar til súkkulaðið hefur náð að bráðna alveg.
  • Setjið hveitið varlega saman við brædda súkkulaðið og hrærið vel saman.
  • Hellið því næst súkkulaðiblöndunni saman við eggjablönduna og hrærið saman með sleif þar til allt hefur náð að blandast vel saman.
  • Skiptið deiginu milli formanna og bakið í 30 mínútur. Það er allt í lagi þó svo kakan sé alls ekki fullbökuð fyrir þessa uppskrift. Kælið kökurnar alveg áður en þið setjið þær saman með ísnum.
Brownie

Myntuís

  • Hrærið rjómaost og sykur saman þar til blandan verður slétt og fín.
  • Bætið mjólk og myntudropum saman við og hrærið.
  • Þeytið rjóma þar til hann stendur og blandið flórsykri saman við rjómann með sleif.
  • Bætið rjómablöndunni saman við rjómaostinn og hrærið varlega saman með sleif.
  • Skerið Siríus pralín rjómasúkkulaði með myntufyllingu niður í grófa bita og blandið varlega saman við.
  • Ef þið viljið lita ísinn þá getið þið sett 1-2 dropa af gelmatarlit að eigin vali. Í þessa uppskrift er notaður rauður matarlitur.

Samsetning

  • Mikilvægt er að brownie kökurnar hafi náð að kólna alveg. Setjið smjörpappír meðfram hliðunum á smelluforminu sem þið ætlið að frysta ísinn í (sama form og brownie kökurnar voru bakaðar í). Gott er að hafa smjörpappírinn aðeins hærri en formið sjálft því kakan gæti náð örlítið fyrir ofan brúnir formsins.
  • Setjið einn botn af brownie köku í botninn á forminu. Setjið helminginn af ísblöndunni yfir kökuna og sléttið úr með sleif. Setjið næsta botn af brownie kökunni ofan á ísblönduna.
  • Því næst setjið þið 1 dl af súkkulaðisírópi yfir kökuna og dreifið jafnt og þétt úr. Setjið restina af ísblöndunni ofan á og dreifið jafnt með sleif.
  • Setjið kökuna í frysti í 5 klst. að lágmarki. Takið kökuna út og takið hana úr forminu og setjið á disk. Skreytið með súkkulaðisírópi, rjóma og skrautsykri / Jimmy´s. Geymið kökuna í frysti þar til borin er framan. Gott er að láta kökuna standa aðeins við stofuhita áður en hún er skorin.
Samsetning

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir