Menu
Ítölsk kaka með rjómaostakremi

Ítölsk kaka með rjómaostakremi

Þessi kaka er mjúk, bragðmikil og góð með mjúku rjómaostakremi með möndlu og vanillubragði sem bráðnar í munni. Pekanhneturnar eru svo stökkar á móti mjúka kreminu, sem sagt fullkomin blanda. 

Innihald

12 skammtar
smjör við stofuhita
sykur
púðursykur
vanilludropar
möndludropar
egg
hveiti
matarsódi
lyftiduft
súrmjólk
kókos
pekanhnetur

Rjómaostakrem:

hreinn rjómaostur frá MS
smjör
flórsykur
vanilludropar
möndludropar

Botn

  • Hitið ofninn í 180 gráður og setjið smjörpappír í botninn á tveimur ca. 22 cm hringlaga kökuformum.
  • Hrærið smjör þar til það verður létt og ljóst, bætið sykri og púðursykri saman við ásamt vanilla- og möndludropum.
  • Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Bætið eggjum saman við, einu í senn og hrærið vel á milli.
  • Gott er að skafa innan úr skálinni með sleif svo allt blandist sem best saman.
  • Setjið hveiti, matarsóda og lyftiduft saman í skál og blandið því saman við deigið ásamt súrmjólkinni. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Grófsaxið pekanhneturnar og blandið þeim saman við ásamt kókósnum og hrærið með sleif.
  • Skiptið deiginu jafnt á milli formanna og bakið í 25 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar.
  • Kælið kökuna alveg áður en þið setjið kremið á hana.

Rjómaostakrem

  • Hrærið rjómaost og smjör saman þar til blandan verður ljós og létt.
  • Blandið flórsykri saman við, smátt og smátt í einu og hrærið vel á milli. Gott er að skafa innan úr skálinni af og til svo allt blandist vel saman.
  • Setjið því næst vanillu- og möndludropa saman við og hrærið þar til kremið verður slétt og fínt. Gott er að hræra kremið vel.
  • Setjið kökubotnana á disk og setjið rjómaostakrem á milli ásamt því að setja krem yfir alla kökuna.
  • Skreytið af vild með kreminu.
  • Þrýstið ristuðum kókós upp að hliðum kökunnar og skreytið með pekanhnetum.
  • Ég notaði sprautustút 1M frá wilton til þess að skreyta toppinn á kökunni.
  • Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram.
  • Það er alltaf gott að taka kökur út úr kæli 15-20 mínútum áður en á að gæða sér á þeim.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir