Síróp
- Afþíðið hindberin og látið í pott með sykri og límónusafa, sjóðið varlega í 2 mínútur.
- Pressið þau svo gegnum sigti, setjið maukið aftur í pottinn og sjóðið aðeins niður til þess að fá þykkara síróp.
- Látið kólna.
Ís
- Hrærið jógúrtina og sykurinn saman.
- Hellið sírópinu í íspinnamót, 4 eða fleiri, eftir því hvað þau eru stór.
- Látið sírópið renna aðeins niður með hliðunum að innanverðu, það gerir skemmtilegt mynstur í ísinn.
- Fyllið mótin með jógúrtinni og komið pinnunum fyrir.
- Frystið yfir nótt.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir