Menu
Innbakaður ostur

Innbakaður ostur

Einfaldur og ómótstæðilega góður smáréttur.

Innihald

1 skammtar
Dala Gullostur
Hindberjasulta
Fersk ber
Frosið smjördeig
Egg

Skref1

  • Hitið ofninn í 200°C.
  • Fletjið smjördeigsplöturnar svolítið og setjið ostinn í miðjuna á deiginu (athugið að þið þurfið sömu stærð af deigi til þess að setja ofan á).

Skref2

  • Leggið smjördeigið á pappírsklædda ofnplötu eða í eldfast mót.

Skref3

  • Smyrjið ostinn með góðri sultu og raðið berjum ofan á.
  • Leggið því næst deig ofan á ostinn og lokið samskeytum vel með gaffli allan hringinn (það þarf örugglega að skera svolítið af deigi frá svo það verði ekki of mikið af því).

Skref4

  • Pískið eitt egg og penslið deigið vel með egginu.

Skref5

  • Bakið við 200°C í 10–12 mínútur eða þar til smjördeigið er orðið gullinbrúnt.

Skref6

  • Sáldrið smávegis af hunangi yfir ostinn þegar hann er kominn út úr ofninum.

Höfundur: Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir