Menu
Humarsalat á gratíneruðu ostabrauði með jógúrt dressingu

Humarsalat á gratíneruðu ostabrauði með jógúrt dressingu

Innihald

4 skammtar
salt
meðalstórir humarhalar
agúrka
tómatar nýuppteknir tómatar (helst nokkrar gerðir)
stórt gróft brauð - að eigin vali úr t.d. bakaríi
rifinn mozzarella ostur frá Gott í matinn
grískt jógúrt frá Gott í matinn
steinselja
smjör
steikingarolía
kaldpressuð ólívuolía
sítrónusafi
salat eða kryddjurtir og kryddjurtastilkar að eigin vali

Skref1

  • Ofninn er hitaður á 200°C.
  • Brauðið skorið í fjórar þykkar og flottar sneiðar, sneiðarnar svo lagðar á bökunarplötu og vel af bræddu smjöri pennslað yfir brauðin.
  • Þá er mozarella ostinum einnig sáldrað yfir brauðin og þau svo ristuð inní ofninum í 10 mínútur.

Skref2

  • Humarinn er skelfléttur og svo steiktur á heitri pönnu í olíu í eina mín á sitthvorri hliðinni. Í blálokin er smjörklípu bætt á pönnuna og humrinum velt vel upp úr smjörinu.

Skref3

  • Agúrkan er skorin í þunna strimla með kartöfluflysjara eða mandólín rifjárni.
  • Þá er smá af ólívuolíu skvett yfir ásamt ögn af sítrónusafa og salti og agúrkan dressuð vel.

Skref4

  • Tómatarnir eru skornir í báta eða sneiðar allt eftir því hvernig maður vill helst hafa þá.
  • Þeir eru þá einnig dressaðir með ólívuolíu, sítrónusafa og salti.

Skref5

  • Jógúrtin er hrærð upp í skál, steinseljan söxuð og hrærð saman við.
  • Sósan er svo smökkuð til með salti og ögn af sítrónusafa.

Skref6

  • Salatið og kryddjurtirnar skolaðar og skornar til.
  • Réttinum er því næst raðað upp og borinn til borðs.

Höfundur: Ungkokkar, Klúbbur matreiðslumeistara