Menu
Heit osta- og spínatídýfa

Heit osta- og spínatídýfa

Þessi er rosalega góð og bragðmikil, ágæt tilbreyting frá hefðbundinni heitri ídýfu með salsasósu.

Innihald

6 skammtar
hreinn rjómaostur frá Gott í matinn
gráðaostur
meðalstór laukur
frosnar spínatkúlur
rifinn ostur frá Gott í matinn

Meðlæti

nachos-flögur að eigin vali

Skref1

  • Spínatið er sett í pott með vatni, látið afþíðast á lágum hita og svo sigtað.

Skref2

  • Laukurinn og gráðaosturinn er skorinn smátt og blandað saman við rjómaostinn ásamt spínatinu.
  • Sett í eldfast form og ostinum stráð yfir.

Skref3

  • Hitað í um 15-20 mínútur við 180°C.

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir