Menu
Ofnbakaður ítalskur fiskur með bauna-pestómús

Ofnbakaður ítalskur fiskur með bauna-pestómús

Innihald

4 skammtar

innihald

langa eða annar hvítur fiskur
olía
sjávarsalt og svartur pipar
maukaðir tómatar í dós
rifinn parmesanostur
sýrður rjómi frá Gott í matinn
rifinn mozzarellaostur frá Gott í matinn

bauna-pestómús

niðursoðnar cannellonibaunir
sýrður rjómi með graslauk og lauk frá Gott í matinn
grænt pestó
sjávarsalt og svartur pipar
ólívuolía

skraut, má sleppa

fersk basilíka, söxuð
ristaðar furuhnetur

Aðferð

  • Stillið ofninn á 180°.
  • Olíuberið eldfast form. Leggið fiskinn í formið, saltið og piprið.
  • Setjið parmesanostinn saman við tómatana og hellið yfir fiskinn.
  • Hrærið saman sýrðum rjóma og 1 dl af mozzarellaostinum. Smyrjið yfir fiskinn. Sáldrið afganginum af ostinum ofan á.  Bakið í 15-20 mínútur.
  • Hellið baunum í sigti og skolið, látið renna vel af þeim. Steikið upp úr smá ólívuolíu á pönnu, þar til þær hitna í gegn. Maukið með gaffli og blandið sýrðum rjóma og pestói saman við. Smakkið til með salti og pipar. Gott er að skvetta smá ólívuolíu ofan á  baunastöppuna og dreifa ferskri basilíku yfir áður en borið er fram. 

Höfundur: Erna Sverrisdóttir