1. Stillið ofninn á 200°C.
2. Takið fram eldfast mót og setjið kartöfluteninga í mótið. Hellið ólífuolíu og kryddinu, appelsínusafa og hlynsírópi yfir. Blandið öllu vel saman. Saltið örlítið. Bakið í u.þ.b. 30-40 mínútur eða þar til kartöflurnar eru tilbúnar.
3. Hrærið öllu saman sem á að fara í sósuna og smakkið til með hunangi og sjávarsalti.
4. Látið kúskúsið í skál og sjóðið appelsínusafann eða vatnið og hellið yfir. Þekið með álpappír og látið standa í 5 mínútur. Hrærið í með gaffli. Blandið síðan saman við kartöflurnar og vökvann sem kemur af þeim.
5. Setjið baunirnar í sigti og hellið sjóðandi vatni yfir þær.
6. Raðið spínati á stórt fat eða á fjóra diska. Setjið kartöflurnar þar ofan á, síðan
kjúklingabaunir, lauk, trönuber, hnetur eða fræ og kóríander. Toppið með muldum Dala fetaosti. Berið fram með jógúrtsósunni.
mjög stór sæt kartafla, skorin í smáa teninga | |
ólífuolía | |
kóríanderfræ | |
appelsínusafi | |
kanill | |
hlynsíróp | |
rauðar chiliflögur (má sleppa) | |
sjávarsalt | |
gróft kúskús og 1 ½ dl appelsínusafi eða sama magn af soðnu vatni | |
dós niðursoðnar kjúklingabaunir | |
þurrkuð trönuber eða rúsínur | |
Ferskt spínat eftir smekk | |
lítill rauðlaukur, skorinn í þunnar ræmur | |
Handfylli af fersku kóríander, gróft saxað | |
Handfylli af möndluflögum, pekanhnetum eða graskersfræjum, ristað | |
fetakubbur frá Gott í matinn, mulinn |
hrein jógúrt frá Gott í matinn | |
tahini | |
sítrónubörkur, fínrifinn | |
hvítlauksrif, marið | |
sinnepsduft | |
Hunang, eftir smekk | |
Sjávarsalt, eftir smekk |
Höfundur: Erna Sverrisdóttir