Menu
Heilhveiti pizza með ofnbökuðum tómötum og salati

Heilhveiti pizza með ofnbökuðum tómötum og salati

Hollari pizza með girnilegu grænmeti og mozzarella.

Innihald

6 skammtar

Botn

heilhveiti
sjávarsalt
vínsteinslyftiduft/lyftiduft á hnífsoddi
vatn
tómatamauk

Ofnbakaðir kirsuberjatómatar

kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
þurrkað oreganó
smá sjávarsalt
smá svartur pipar
ólívuolía

Grænmetissalat

klettasalat
lárpera, skorin í þunnar sneiðar
ofnbakaðir kirsuberjatómatar
ristaðar furuhnetur
mozzarellakúlur, rifnar niður eða 250 g kotasæla
búnt fersk basilíka, u.þ.b. 40 g
rauðvínsedik
ólívuolía
sjávarsalt og svartur pipar eftir smekk

Botn

  • Blandið fyrstu þremur hráefnunum saman í skál.
  • Setjið vatn og tómatamauk saman vi og hærið. Bætið meira heilhveiti saman við ef þurfa þykir.
  • Hnoðið létt og skiptið deiginu í 6 parta.
  • Fletjið hvern part út í þunnan hring sem er um 22 cm í þvermál.
  • Þurrsteikið á pönnu, báðum megin.

Ofnbakaðir kirsuberjatómatar

  • Stillið ofninn á 220°.
  • Setjið tómatana á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
  • Sáldrið kryddi yfir.
  • Hellið olíunni jafnt yfir.
  • Bakið í 20-25 mínútur.

Grænmetissalat

  • Maukið basilíkuna og rauðvínsedikið í matvinnsluvél eða með töfrasprota.
  • Hellið olíunni saman við á meðan vélin er að vinna.
  • Smakkið til með salti og pipar.
  • Leggið salatið á pizzubotnana.
  • Raðið tómötum, osti og lárperu yfir.
  • Dreifið salatsósunni jafnt yfir pizzurnar.
  • Sáldrið loks furuhnetunum yfir.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir