Menu
Hakkabuff á ítalskan hátt

Hakkabuff á ítalskan hátt

Berið fram með kartöflumús og góðu salati.

Innihald

6 skammtar

Hakkabuff innihald

nautahakk
matreiðslurjómi frá Gott í matinn
franskbrauð skorpan skorin af
kotasæla
rifinn mozzarella frá Gott í matinn
egg
salt
nýmalaður svartur pipar
þurrkuð steinselja
þurrkað oregano
saxaðir hvítlauksgeirar (2-3 stk)
Hveiti til að velta bollunum uppúr

Tómatsósa innihald:

meðalstór laukur
hvítlauksgeirar
ólífuolía
þurrkað oregano
chilliduft
niðursoðnir tómatar
balsamik edik
sykur

Hakkabuff

  • Sjóðið upp á rjómanum og tætið skorpulausu brauðsneiðarnar saman við.
  • Hrærið vel í svo brauðið blandist vel saman við og kælið örlítið.
  • Setjið öll hráefnin saman í skál og blandið saman við með brauðblöndunni.
  • Hrærið allt vel saman í höndunum.
  • Gætið að hræra ekki of mikið því þá gætu buffin orðið seig.
  • Lagið buff á stærð við egg og raðið í eldfast mót.
  • Setjið litla kúlu af mozzarellaosti á toppinn og þrýstið í bolluna þannig að 1/3 af kúlunni standi uppúr.
  • Bakið við 170°C í 20-35 mínútur.

Tómatsósa

  • Saxið laukinn og hvítlaukinn og gljáið í olífuolíunni.
  • Bætið við oreganó og chillidufti ásamt niðursoðnum tómötum.
  • Látið malla í c.a. 40 mínútur við vægan hita.
  • Bætið í balsamic ediki og sykri og látið sjóða í 10 mínútur í viðbót.
  • Kryddið til með salti og nýmöldum svörtum pipar.

Höfundur: Klúbbur matreiðslumeistara