Menu
Gulrótarsúpa með karrí

Gulrótarsúpa með karrí

Innihald

4 skammtar
pipar
salt
vorlaukur eða graslaukur
sýrður rjómi frá Gott í matinn
gulrætur
laukur
grænmetiskraftur
matreiðslurjómi frá Gott í matinn
karríduft

Skref1

  • Flysjið eða skafið gulræturnar og saxið laukinn.

Skref2

  • Setjið gulrætur, lauk og grænmetiskraft í pott ásamt ½ l af vatni, hitið að suðu og látið malla í 15-20 mínútur, eða þar til gulræturnar eru meyrar.

Skref3

  • Hellið þá öllu úr pottinum í matvinnsluvél eða blandara eða maukið súpuna með töfrasprota.

Skref4

  • Hellið aftur í pottinn, bætið við matreiðslurjóma, karríi og pipar og salti eftir smekk, hitið og látið sjóða við hægan hita í nokkrar mínútur.

Skref5

  • Saxið vorlauk smátt.
  • Ausið súpunni á diska eða í skál, gott er að setja matskeið af sýrðum rjóma í miðjuna og vorlauk eða graslauk yfir.

Höfundur: Nanna Rögnvaldsdóttir