Menu
Grísk jógúrt með berjum og tröllahöfrum

Grísk jógúrt með berjum og tröllahöfrum

Ferskt og gott í bæði morgunmat eða léttan eftirrétt. Þetta bragðast jafn vel daginn eftir en þá þarf að geyma í kæli.

Innihald

2 skammtar
grísk jógúrt frá Gott í matinn
tröllahafrar
hlynsíróp (má að sjálfsögðu vera minna)
kanill
bláber
jarðarber
kókos

Skref1

  • Setjið tröllahafra í skál ásamt sírópi og kanil og hrærið vel saman.

Skref2

  • Hrærið jógúrtina vel og setjið um 2 msk. í hvert glas.

Skref3

  • Setjið bláber og niðurskorin jarðarber á milli, aftur um 2 msk. af jógúrt ofan á og svo aftur ber.

Skref4

  • Setjið því næst tröllahafra ofan á og stráið smá kókos á toppinn.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir