Menu
Grilluð samloka með osti, salsasósu og pepperóní

Grilluð samloka með osti, salsasósu og pepperóní

Einfalt, þægilegt og gott! 

Innihald

1 skammtar
brauðsneiðar, samlokubrauð eða annað brauð
Gotta ostur í sneiðum
salsasósa, 2-3 msk.
pepperoni
mjúkt smjör
fersk basilíka eða annað ferskt krydd eftir smekk

Skref1

  • Smyrjið tvær samlokubrauðsneiðar með salsasósu.
  • Leggið Gotta ostsneið á báðar brauðsneiðar.
  • Raðið þremur pepperoni sneiðum ofan á ostinn á annarri brauðsneiðinni og leggið svo hina brauðsneiðina ofan á.

Skref2

  • Smyrjið brauðið að utan með þunnu lagi af smjöri og steikið á pönnu við meðalhita þar til gullinbrúnt.
  • Snúið þá samlokunni við, smyrjið smá salsasósu ofan á samlokuna, setjið Gotta ostsneið ofan á og toppið með restinni af pepperoni sneiðunum.
  • Setjið samlokuna í ofn í 5 mínútur eða þar til osturinn bráðnar alveg og pepperoníið hefur aðeins bakast.
  • Einnig er hægt að hafa samlokuna áfram á pönnunni og setja lok á þar til osturinn bráðnar. Stráið yfir smá fersku basil og berið fram.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir