Menu
Grilluð pizzasamloka

Grilluð pizzasamloka

Grilluð samloka með stökkri skorpu og rucola salati sem steikt er upp úr smjöri, hvað er betra en það?

Innihald

1 skammtar
af grófu brauði
pizzasósa
pepperoni
af osti eða rifinn ostur frá Gott í matinn
litlar kúlur af mozzarellaosti
salt
pipar
smjör (2-3 msk.)
rucola salat

Skref1

  • Setjið pizzasósu á hvora brauðsneið fyrir sig.
  • Setjið ostsneiðar ofan á ásamt pepperoni.
  • Skerið mozzarellakúlurnar niður í sneiðar og raðið ofan á pepperoniið, kryddið með salti og pipar og lokið samlokunni.

Skref2

  • Setjið smjör á pönnu og hitið yfir meðalháum hita, setjið samlokuna á pönnuna og steikið á hvorri hlið fyrir sig þar til osturinn hefur bráðnað.
  • Gott er að þrýsta örlítið ofan á samlokuna á meðan hún er að eldast.
  • Berið fram með rucola salati.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir