Skref1
- Smjör og vatn sett í pott og brætt.
- Kókoshveiti bætt í pottinn og hrært vel saman.
- Xhantan gum bætt út í og blandað við.
- Sett í skál og látið kólna.
- Eggjum bætt við, eitt í einu og hrærð vel saman við deigið.
Skref2
- Nota skeið til að setja deig á bökunarplötu með bökunarpappír á.
- Bakað með blæstri á 180 gráðum í um 30-35 mínútur. Baksturstíminn fer eftir stærðinni á bollunum.
- Þær gætu verið smá blautar að innan sem mörgum þykir gott en það er líka í lagi að skafa aðeins úr þeim.
Skref3
- Bræðið sykurlaust súkkulaði og setjið ofan á bollurnar.
- Þeyttur rjómi með vanillufræjum er settur á milli.
Höfundur: Hafdís Priscilla Magnúsdóttir