Menu

Innihald

1 skammtar

Hveiti og gerlaus pizzabotn:

egg
rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn, 2-3 msk.
Husk
pizzakrydd

Álegg:

Dala Camembert
Gráðaostur frá MS
Piparostur frá MS
Hreinn rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn

Sykurlaus jarðarberjasulta:

jarðarber, fersk eða frosin
chia
heitt vatn
sukrin melis (má sleppa)
sítrónusafi

Skref1

  • Setjið hráefni fyrir botninn í hátt glas eða box og blandið vel saman með töfrasprota eða setjið í blandara.
  • Setjið í sílikonform sem er 9 tommur að stærð eða um 22 cm.
  • Bakið á 200 gráðum í 10-15 mínútur eða þar til pizzabotninn fer aðeins að lyfta sér.

Skref2

  • Takið botninn úr ofni og smyrjið sykurlausri pizzusósu yfir.
  • Dreifið rifnum osti yfir.
  • Skerið ostana í litla bita og dreifið yfir pizzuna.
  • Bakið áfram í 5-10 mínútur eða þar til rifni osturinn er gylltur.

Sykurlaus jarðarberjasulta

  • Allt sett í skál og blandað með töfrasprota eða nota aðrar græjur sem henta.
  • Þegar búið er að blanda setja í krukku og loka og inn í ísskáp eða eins og í þessu tilfelli njóta með pizzunni

Höfundur: Hafdís Priscilla Magnúsdóttir