Aðferð
- Skerið gulrætur, fennel, blaðlauk og kartöflur í bita. Léttsteikið í smjöri eða olíu.
- Stráið karrí, túrmerik og chiliflögum yfir.
- Hellið vatni og ediki saman við og bætið grænmetis-/fiskiteningum saman við.
- Látið sjóða í rúmlega 10-15 mínútur.
- Berjið sítrónugrasið léttilega svo það opnist. Finnið yndislegan ilminn og skerið það í búta. Setjið bútana í súpuna ásamt limelaufum og worchestershiresósu.
- Hellið rjóma eða kókósrjóma saman við.
- Skerið fiskinn í bita og setjið út í súpuna með rækjunum.
- Smakkið til með salti og pipar.
- Látið malla í rúmlega 10-15 mínútur eða lengur ef það hentar á mátulegum hita.
- Skreytið með spínat í lokin.
Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal