Menu
Mexíkósk kjúklingasúpa

Mexíkósk kjúklingasúpa

Ljúffeng mexíkósk kjúklingasúpa sem er borin fram með sýrðum rjóma, nachosflögum og rifnum osti.

Innihald

4 skammtar

Mexíkósk kjúklingasúpa

kjúklingakjöt
olía
laukur
plómutómatar skornir í bita
blaðlaukur smátt saxaður
rauð paprika smátt söxuð
grænt chili fínt saxað
paprikuduft
tómatpúrra
kjúklingasoð (vatn og teningur)
salsa sósa
rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn

Meðlæti í súpuna

sýrður rjómi frá Gott í matinn
nachos flögur
rifinn ostur frá Gott í matinn

Aðferð

  • Steikið saman í olíu kjúklingakjötið, laukinn, blaðlaukinn, paprikuna, grænt chilli og plómutómatana.
  • Bætið í paprikudufti og tómatpurré, blandið vel saman.
  • Hellið saman við kjúklingasoðið og látið sjóða í 15- 20 mín við vægan hita.
  • Bætið salsasósu í súpuna ásamt klípum af rjómaostinum.
  • Látið sjóða í 3-5 mín við vægan hita.
  • Berið súpuna fram með sýrðum rjóma, nachos flögum og rifnum osti.

Höfundur: Árni Þór Arnórsson