Menu
Flatbrauð með kókos

Flatbrauð með kókos

Hér er á ferðinni uppskrift að ljúffengu flatbrauði þar sem kókosmjöli leikur stórt hlutverk. Þetta kókosflatbrauð passar einstaklega vel með fiskréttum og indverskum mat.

Innihald

1 skammtar
hveiti
kókosmjöl
sjávarsalt
sjóðandi vatn
ólífuolía eða matarolía

Skref1

  • Setjið fyrstu þrjú hráefnin í skál og blandið saman.
  • Búið til holu í miðjunni og hellið olíu og vatni ofan í.
  • Hrærið saman og hnoðið.
  • Bætið við hveiti ef þurfa þykir, þar til þið fáið mjúkt og óklístrað deig.

Skref2

  • Skiptið deiginu í fjóra hluta.
  • Fletjið hvern hluta út í 20 cm kökur.
  • Þurrsteikið á pönnu, um 1 mínútu hvora hlið.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir