Þessi uppskrift er ættuð frá Portúgal og hefur einhverra hluta vegna verið elduð handa okkur á páskum af móður og tengdamóður. Þar sem fjölskyldan getur sameinast í því að þykja þessi fiskréttur virkilega góður fannst mér um að gera að deila uppskriftinni og leyfa öðrum að prófa. Þið verðið ekki svikin af þessum rétti. Hann kemur virkilega skemmtilega á óvart!
útvatnaður saltfiskur, soðinn og þerraður | |
meðalstór laukur, smátt saxaður | |
hvítlauksrif, eftir smekk, fínt skorin eða marin | |
egg, hrærð (5-6 stk.) | |
lárviðarlauf (2-3 stk.) | |
gæða ólífuolía | |
sjávarsalt og svartur pipar | |
lófafylli fersk steinselja, smátt söxuð | |
svartar ólífur | |
kartöflur |
Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir