Menu
Súkkulaði sjeik sem allir elska

Súkkulaði sjeik sem allir elska

Sjeik eða shake? Það er misjafnt hvað fólk vill kalla þetta góðgæti en hér er á ferðinni ljúffengur sjeik sem er þess virði að prófa.

Auðvelt og æðislega gott.

Innihald

2 skammtar
súkkulaðiís
Vanillublanda frá MS
Súkkulaðisíróp
frosinn banani
stórir ísmolar (4-5 stk.)
Rjómi frá Gott í matinn og súkkulaðispænir fyrir toppinn

Skref1

  • Súkkulaðiís, Vanillublöndu og klökum er skellt saman í blandara.

Skref2

  • Súkkulaðisírópinu er svo sprautað í kantana á glasinu, sjeikinn settur ofan í og rjómi og súkkulaðispænir á toppinn.

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir