Menu
Snickers skyrkaka

Snickers skyrkaka

Auðvelt er að frysta skyrkökur í allt að 3 mánuði. 

Innihald

12 skammtar

Botn:

saltkringlur/stangir
púðursykur
smjör

Skyrkaka:

hreint KEA skyr
flórsykur (meira fyrir þá sem vilja sætari köku)
rjómi
matarlímsplötur
mjólk

Toppur:

rjómi
kakó
Snickers (3-4 stk.)
hnetusmjör
súkkulaðisíróp

Botn

  • Setjið saltkringlur og púðursykur í matvinnsluvél og hakkið þar til fínmalað.
  • Bræðið smjörið og blandið því saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Setjið smjörpappír í botninn á hringlaga smelluformi, um 22 cm að stærð.
  • Setjið blönduna í formið og þrýstið vel niður í botninn, gott er að nota botninn á glasi til þess að þrýsta blöndunni niður og slétta úr henni.
  • Geymið í kæli á meðan þið undirbúið rest. 

Fylling

  • Setjið matarlímsblöðin í skál með köldu vatni og látið þau liggja í bleyti í rúmar 5 mín.
  • Þeytið rjóma og hrærið saman við skyrið ásamt flórsykri.
  • Kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið í pott ásamt mjólkinni.
  • Hitið yfir lágum hita og hrærið þar til matarlímið er búið að leysast alveg upp.
  • Hellið matarlímsblöndunni saman við skyrblönduna og hrærið vel.
  • Hellið skyrblöndunni yfir botninn, setjið plastfilmu yfir kökuformið og kælið í 8 klst.
  • Takið kökuna út úr kælinum, gott er að nota heitan hníf til þess að skera meðfram köntum formsins til þess að losa kökuna.
  • Smellið forminu af og setjið kökuna á disk.

Toppur

  • Þeytið rjóma þar til hann stendur, blandið kakói saman við og hrærið saman með sleif.
  • Sprautið rjómanum fallega á ystu brúnir kökunnar (t.d. með stút nr. 1M) eða setjið hann yfir alla kökuna.
  • Skerið niður Snicers í litla bita og setjið á kökuna ásamt súkkulaðisírópi og hnetusmjöri.
  • Gott er að setja hnetusmjörið í sprautupoka og sprauta því á kökuna.
  • Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir